Muna að kvitta fyrir komuna
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 17 nóvember
Sportið
Útvarp
Bannað innan 18 . . . . .
Tónlist
12.11.2008 11:37:07 / disa

Langt síðan síðast. . . . . .

Ætla svo sem ekkert að blogga. Vildi bara segja ykkur að Nadía Ósk Sævarsdóttir er komin með barnalandssíðu og þið getið haft samband til að fá lykilorðið ef ykkur langar að skoða.

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 15:48:57 / disa

Hver man eftir þessu

http://www.tonlist.is/Video/MusicVideo/1018/bubbleflies/pinocchio/

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 19:55:57 / disa

Ætla að prófa aftur

Jæja ákvað að læsa síðunni minni og prófa að sjá hvort að ég nenni að halda áfram að blogga. Nenni því reyndar ekki núna en ætla að gera það á morgun og jafnvel kannski að fara hafa myndir á síðunni svona fyrst ég er búin að læsa henni.

XOXO gossip girl


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 16:02:49 / disa

...

Ég er hætt að blogga, takk fyrir mig

» 8 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 12:50:19 / disa

Loksins föstudagur

Loksins loksins loksins segi ég nú bara eftir að hafa vaknað hvorki meira né minn en 3 sinnum í þessari viku og fyrsta hugsunin er ummmm það er laugardagur ég þarf ekki að fara á fætur og get sofið lengur. fyrst var þetta á þriðjudaginn og mikið rosalega var það vondur skellur að fatta að það væri BARA þriðjudagur svo í gær og loks í dag en þetta var svo sem skást í dag þar sem þetta var síðasti dagurinn í vinnuvikunni.

Góða helgi allir



» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 11:49:23 / disa

Flott lag

jæja akkúrat 3 vikur í dag til páskanna og verð ég að segja að ÉG GET EKKI BEÐIÐ ég er farin að hlakka svo mikið til að þið trúið því ekki smá nokkurra daga frí frá nánast öllu :haha:

Þetta er klippa úr one tree hill og það er geggjað lagði sem er í bakgrunninn hlustið

http://www.youtube.com/watch?v=0YtKqXVLbqY
stelpan sem er að syngja er hrikalega góð þið heyrið það þegar kemur að körfubolta atriðinu.
Ég set svo lagið inn í heild sinni líka

http://www.youtube.com/watch?v=RMWap3_4s80&feature=related

Mér finnst þetta allavega hrikalega flott lag :haha:

Ég kann ekki að gera tengilinn þannig að þið ýtið á hann þannig að þið verðið bara að gera copy paste.
Ef einhver kann að segja mér hvernig ég get gert þetta þannig að þið þurfið bara að smella á slóðina þá megið þið alveg segja mér hvernig það er gert.
ég ákvað að gera smá tilbreytingu frá því að segja ykkur hvernig var í ræktinni, hvernig ég svaf eða hversu glær ég er þessa dagana:haha: :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 09:55:58 / disa

Once again

Þá er kominn mánudagur eina ferðina enn. . . .og ég nennti ekki í ræktina í morgun:$ alveg slæmt. Ég hélt að þegar Sævar yrði farinn á sjó þá yrði auðveldara að fara á fætur en það var allavega ekki þannig í morgun :$ Ótrúlega skrýtið :haha: Kannski nenni ég seinnipartinn í dag. . . . eða ekki :haha: En ég fór í ræktina á laugar daginn síðasta og sennilega fer ég á morgun og það er framför að láta bara líða 2 daga á milli heldur en viku:haha:

Annar er merkur áfangi í dag. . . . En við Sævar eigum hvorki meira né minna en 1/2 árs brúðkaupsafmæli í dag :haha: Merkur áfangi :haha:

eins og flest ykkar kannski föttuðuð hér aðeins ofar þá er eiginmaðurinn farinn á sjó og voru það þvílík viðbrigði að vera orðin aleins heima eftir að hann var búinn að vera heima í rúma 2 mánuði eða sem sagt frá 12.des en það verður svo sem ekki langt í að hann komi heim eða sirka 30 dagar í mesta lagi :haha: Hann verður komin heim fyrir páska :haha: Það verður enga stund að líða (Á maður ekki alltaf að vera bjartsýnn)

Ég veit ekki alveg hvort að ég er að fíla þetta nýja central allavega hérna inn á stjórnborðinu þar sem allar stillingar eru allt komið í rugl í tenglum og þvílíkt bull og ég er bara ekki að ná að laga neitt eins og ég vil hafa það en ég er allavega búin að fatta að allt sem ég reyni að breyta og laga get ég ekki vistað í tölvunni í vinnunni heldur bara heima þannig að ég lagaði aðeins í gær og svo er spurning hvernig áframhaldið verður sjáum til.

heyrumst




» 7 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 12:53:54 / disa

Mig langar. . . .

Til að leggjast niður og sofa í heila viku :$ Ég er búin að vakna núna alveg fast 1 sinni á nóttu í bilinu 2 - 5.30 og finnst bara eins og ég eigi að fara á fætur og gengur frekar illa að sofan aftur og þetta gerir það af verkum að ég er illa úldin á morgnana. Ég fer að taka svefntöflur bara ef þetta fer ekki að lagast nenni ekki að vera svona og þetta er alltaf svona alveg sama hvenær ég fer að sofa á kvöldin.

En ég fór í ræktina í gær alveg undur og stórmerki og það var eiginlega bara hrikalega gaman, hef samt eiginlega ekki tíma í dag ætla að reyna vera geðveikt samviskusöm og fara heim að læra eftir vinnu en ætla svo í ræktina á morgun :haha:

Rak augun í nokkuð skondna frétt á mbl í gær :haha:

Fjarstýrðar sáðfrumur


Búið er að finna upp fjarstýrðan loka sem er á stærð við hrísgrjón. Var hann þróaður með það fyrir augum að koma honum fyrir í sáðrás karlmanna til að nota sem getnaðarvörn. Að sögn sænska dagblaðið Dagens Nyheter virkar lokinn að flestu leyti eins og fjarstýring á hurðarlásum á bílum.Þessi loki getur orðið fýsilegri valkostur en hefðbundið sáðgangsrof þar sem sáðrásin er skorin í sundur og brennt fyrir endana. Ef menn skipta síðan um skoðun er hægt að sauma þá saman á ný en það er erfitt og einhverjar líkur eru á að aðgerðin mistakist.

Nýi lokinn mun vera úr sílikoni og hægt er að koma honum fyrir með nál og stýra með útvarpsbylgjusendi sem er með einstakan kóða þannig að hver sem er geti ekki opnað eða lokað fyrir sáðrásarlokann ekki frekar en bílafjarsýringar virka ekki á alla bíla.

jæja heyrumst síðar

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 09:28:06 / disa

framundan er. . . .

helgin því í dag er flöskudagur / föstudagur og helgarfríið að bresta á :haha: næs verður illa ljúft :haha:

Mig langar alveg ótrúlega mikið til þess að hætta í fjarnáminu en ég er svo nísk að ég eiginlega tími því ekki því ef ég hætti þá tapa ég um 40.000 kalli mér finnst það eiginlega of mikill peningur til að henda út um gluggann 8|  En ég er samt svo innilega ekki að nenna að vera læra kannski á það eftir að lagast en við erum að tala um að á þriðjudaginn þá fataði ég að ég gleymdi að skila verkefni á sunnudeginum í íslensku. . . . . .Í íslenskunni eru þetta ljóð(sem ég þoli ekki og get ekki bullað mig útúr)og bókmenntasaga og sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxnes og hún er BARA leiðinleg Íslandsklukkan er bráðskemmtileg bók í þessum samanburði :haha: og þetta er bara íslenskan sem ég er að tala um hér ég ætla ekki að minnast einu sinni á þýskuna......

ég held að það sé í tísku að stjörnurnar fara í meðferð

  • Britney
  • Amy
  • LiLo
  • og nú nýjast Kirsten Dunst

Hvar endar þetta jæja góða helgi allir

XOXO

gossip girl 


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 11:58:00 / disa

Öskurdagur

ekki skemmtilegasti dagurinn á árinu að mínu mati :$ Ég yrði ekkert sorgmædd ef honum væri bara sleppt í næsta dagatali :haha:

Jæja ég er búin að fá fyrstu 6 þættina úr nýju seríunni af one tree hill og búin að horfa á 2 fyrstu :haha:  magnað alveg hreint og svo er ég líka búin að fá næstu 4 þætti í desperate housewifes og búin að horfa á einn þar :haha: :haha: Fínt að geta horft á þættina þegar mér hentar :haha:

Ótrúlega lítið að frétta af mér letin í ræktinni heldur áfram ég var nú samt pínu dugleg í síðustu viku held að ég hafi farið alveg 2 sinnum ótrúlegt :haha:  En ég fer alveg að verða dugleg aftur kannski í næstu viku :haha:

later 


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 09:08:27 / disa

Föstudagsfílingur

hann var reyndar hjá mér í gær líka þannig að ég fæ 2 föstudaga í þessari viku :haha: haaaaa geri aðrir betur :haha:

Ég er með svona 2 nettar föstudagspælingar og önnur þeirra er smá framhald úr fyrri umræðu en það er hvað er að mera matvandur :!:  Getur fólk ekki bara sagst vera alætur eða valætur ?????????

Og sú seinni er tannburstarðu þig á morgnana áður en þú borðar morgunmat, eftir að þú borðar morgunmat eða sleppirðu því bara alveg að tannbursta þig á morgnana. Ég er sko mikið búin að velta þessu fyrir mér síðustu daga.:haha::haha::haha:

En að öðru þá óska ég ykkur góðrar helgar :haha: 


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 11:24:50 / disa

Hugsun

Mig langar ekkert smá mikið til að fara út að borða á Friðrik V langar geggjað að sjá hvernig þetta er á nýja staðnum hef einu sinni farið þegar veitingastaðurinn var á gamla staðnum og þá fór ég á jólahlaðborð þar sem var bara fínt þó ég boraði ekki marga rétti þar en þeir sem ég borðaði voru góðir. Svo ég fann heimasíðu hjá þeim og skoðaði matseðilinn og komst að því að ég borða bara eiginlega ekki neitt á þessum matseðli ??????? Þeir eru ekki með 1 kjúklingarétt . . . . . . Í aðalrétt er bara rautt kjöt. . . . . . Þetta er eitthvað sem mér finnst pínu skrýtið og ég sá heldur engann grænmetisrétt ég verð að segja að ég varð frekar svekkt. Það er nú svo sem einn og einn forréttur sem ég gæti borðað en hvað er gaman að fara út að borða og fá bara forrétt 8|

Annars er bara pínu crazy veður hérn núna eða allavega þegar ég var úti áðan veit ekki hvort það er enn og ég verð nú að segja að það er bara fínt að fá svona smá alvöru vetur ég man ekki hvenær kom svona veður síðast bara gaman að því :haha:

heyrumst

ussssss og ég blogga bara oft þessa dagana :haha: 


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 09:57:46 / disa

bloggstuð

jú jú hvað er að gerast bara að blogga 2 daga í röð eitthvað sem ekki hefur gerst í einhvern tíma en svona er það þegar andinn kemur yfir mann eða bara þörfin til að röfla :haha:

Ég fór í plokk og lit í gær eða réttara sagt vax og lit og nú lít ég manneskjulega út og mikið er það gott :haha:  Allavega fór í Aqua spa og þar var mér fyrst boðið í fótabað sem ég var bara ekki viss um hvort ég ætti að drífa mig því ég var nú bara að fara í plokk og lit en ákvað að slá til og sé ekki eftir því ég náði að slaka þvílíkt vel á og fékk hita á axlirnar og mig langaði eiginlega bara til að sofna þarna í sófanum á meðan ég beið :haha: voða notaleg birta og svona síðan var það svo litunin og meðan liturinn beið í þá fékk ég smá svona axlanudd sem einnig var þvílíkt afslappandi ummmmm hvað þetta var svo þægilegt eitthvað :haha: :haha: ég er nottla frekar mikið nautnadýr og finnst æði að gera eitthvað svona fyrir sjálfa mig :haha: Ég fer svo í klipp og litun eftir viku en þá vantar mig eiginlega bara 2 ljósatíma og smá brúnkukrem og þá held ég að allt sem ég var að kvarta undan um daginn verði bara í fínu lagi (nema kannski feitan en ég er aftur farin að mæta í ræktina þannig að þá hlýtur það að lagast fljótlega) :haha: :haha: :haha: nema hvað ég var og vitlaus að fara ekki í ljós áður en ég fór í plokk og lit þannig að núna tími ég því ekki því að annars fer bara liturinn úr augabrúnunum :haha: :haha: :haha: þannig að ég læt þá bara brúnkukremið duga í bili. :haha: :haha:

jæja þetta var nú frekar stutt og grunnhyggið blogg en mér er bara alveg sama kem kannski með eitthvað dýpra blogg næst svona þegar ég nenni að byrja lesa sjálfstætt fólk eftir vin minn hann Halldór Laxnes :haha:  :haha:

heyrumst 


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 10:42:28 / disa

Frekar litlaus dagur

Jábbbb ég vaknaði kl. 4 í nótt og var vakandi sennilega í eins og 1 og 1/2 klukkutíma þar sem það var svo ógeðslega mikið rok að gasgrill nágrannans og allt rusli frá þeim fauk yfir til mín ekki spes það frekar leiðinlegt að vakna við það að gasgrill er naustum því mætt inn í forstofu til þín og þegar mér bregtður svona mikið eins og nótt þá á ég svo erfitt með að sofna aftur og svo er líka NETTUR pirringur í manni yfir sóðum sem henda ekki ruslinu sínu og það fýkur yfir til mín ég var ekkert hress í morgun þegar ég kom út og það var hrár laukur og svona ógeð fyrir framan hurðina........ en gasgrillið var farið ....... en það fór ekki í ruslið heldur á sama stað og það var kvöldið áður.............

En ég er frekar litlaus eitthvað í dag og fólk gæti meira að segja haldið að ég væri gjörsamlega alveg nývöknuð en það er skýring á þessu öllu því að ég sleppti því að mála mig í morgun því ég er að fara í plokkun og litun í dag :haha:  ohhh fæ andlit aftur get ekki beðið :haha: Gæti svo sem alveg gert þetta sjálf en annað slagið er gott að láta dekra smá við sig. Fékk gjafabréf í aqua spa í jólagjöf og ætla nota hluta af því og ég hlakka til að prófa fara þarna því maður hefur heyrt svo góðar sögur af þessari stofu :haha:

Ég mætti í ræktina á föstudaginn OG laugardaginn :haha:  ótrúlega ánægð með mig að vera aðeins að drífa mig af stað aftur :haha: Nennti hins vegar ekki að fara í morgun þar sem það sagði til sín þreyta eftir vöku næturinnar :$ Verð bara duglegri á morgun þá :haha:

heyrumst 


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 32
Heimsóknir
Í dag:  28  Alls: 98900
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Klukkan
páskafrí
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1230 dögum
Bumbukríli á að fæðast
Dísa afmæli
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1024 dögum
Ég á afmæli
Sævar afmæli
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1223 dögum
Sævar á afmæli
Jólin koma
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1141 dögum